Acts 6

1Á þessum dögum, er lærisveinum fjölgaði, fóru grískumælandi menn að kvarta út af því, að hebreskir settu ekkjur þeirra hjá við daglega úthlutun. 2Hinir tólf kölluðu þá lærisveinahópinn saman og sögðu: ,,Ekki hæfir, að vér hverfum frá boðun Guðs orðs til að þjóna fyrir borðum. 3Finnið því, bræður, sjö vel kynnta menn úr yðar hópi, sem fullir eru anda og visku. Munum vér setja þá yfir þetta starf. 4En vér munum helga oss bæninni og þjónustu orðsins.`` 5Öll samkoman gerði góðan róm að máli þeirra, og kusu þeir Stefán, mann fullan af trú og heilögum anda, Filippus, Prókorus, Níkanor, Tímon, Parmenas og Nikolás frá Antíokkíu, sem tekið hafði gyðingatrú. 6Þeir leiddu þá fram fyrir postulana, sem báðust fyrir og lögðu hendur yfir þá. 7Orð Guðs breiddist út, og tala lærisveinanna í Jerúsalem fór stórum vaxandi, einnig snerist mikill fjöldi presta til hlýðni við trúna. 8Stefán var fullur af náð og krafti og gjörði undur og tákn mikil meðal fólksins. 9Þá komu til nokkrir menn úr svonefndri Leysingjasamkundu. Þeir voru frá Kýrene og Alexandríu, en aðrir frá Kilikíu og Asíu, og tóku að þrátta við Stefán. 10En þeir gátu ekki staðið gegn visku þeirri og anda, sem hann talaði af. 11Þá fengu þeir menn nokkra til að segja: ,,Vér höfum heyrt hann tala lastmæli gegn Móse og Guði.`` 12Þeir æstu upp fólkið, öldungana og fræðimennina, og þeir veittust að honum, gripu hann og færðu hann fyrir ráðið. 13Þá leiddu þeir fram ljúgvotta, er sögðu: ,,Þessi maður er alltaf að tala gegn þessum heilaga stað og lögmálinu. 14Vér höfum heyrt hann segja, að þessi Jesús frá Nasaret muni brjóta niður musterið og breyta þeim siðum, sem Móse hefur sett oss.`` 15Allir sem í ráðinu sátu, störðu á hann og sáu, að ásjóna hans var sem engils ásjóna.
Copyright information for Icelandic